Inngangur

Kveikja Myndlistaskólans Byggingarlist

Velkomin í Kveikjuna - rafrænt verkefnasafn Myndlistaskólans í Reykjavík.

 

Um Kveikuna

Hér eru birt verkefni tengd byggingarlist og umhverfisvitund ætluð börnum og ungu fólki. Kveikjan er þróunarverkefni Myndlistaskólans í Reykjavík, gerð til að mæta þörf fyrir námsefni á sviði byggingarlistar fyrir börn og ungmenni. Á hverju ári kemur fjöldi kennara að störfum í barna- og unglingadeild skólans og eins og títt er í skapandi kennslu býr hver til sitt efni. Með Kveikjunni er stigið skref í þá átt að safna verkefnum saman til að geta deilt hugmyndum og þróað áfram. Síðustu fimm árin hefur byggingarlist verið mikið til umfjöllunar innan skólans. Kemur þar margt til – ekki síst sú staðreynd að börn og ungt fólk hafa mikinn áhuga og löngun til að skilja umhverfi sitt betur. Með styrk frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti er nú hægt að safna saman og setja fram á þriðja tug verkefna. Það er von okkar í Myndlistaskólanum í Reykjavík að Kveikjan geti gagnast sem flestum sem vilja auka veg skapandi hugsunar og lista í skólastarfi. Kveikjan er hugmyndabanki ætlaður leik-, grunn- og framhaldsskólakennurum. Að uppbyggingu Kveikjunnar kemur fjöldi kennara, listamanna, hönnuða og arkitekta og munu sífellt ný verkefni bætast við – og vonandi ná til fleiri þátta sjónlista í framtíðinni. Námsefnið hefur verið þróað og prufukeyrt í Myndlistaskólanum í Reykjavík á námskeiðum og í Listbúðum síðastliðin ár, meðal annars með styrk frá Menntasviði Reykjavíkurborgar.

Markmið Kveikjunar eru

  1. Að halda utan um og gera aðgengileg verkefni tengd byggingarlist sem þróuð hafa verið af kennurum Myndlistaskólans, arkitektum og myndlistarmönnum.
  2. Að miðla reynslu og þekkingu sem til staðar er í Myndlistaskólanum eftir áralanga þróun.
  3. Að veita aðgengi að námsefni og kveikjum á sviði sjónlista.
  4.  Að dýpka og styðja við þá myndlistakennslu sem fyrir er innan skólakerfisins.
  5. Að efla umræðu og fræðslu meðal almennings um arkitektúr og byggingarlist.

Hverjum er Kveikjan ætluð?

Kveikjan er ætluð öllum kennurum sem hafa áhuga á að vinna með byggingarlist og umhverfisvitund í kennslu sinni. Mikilvægt er að kennsluefni í byggingarlist sé sveigjanlegt og einstaklingsmiðað, og eru verkefnin því ekki aldursflokkuð. Verkefnasafnið er hugsað sem innblástur og kveikja að öðrum og nýjum verkefnum.

Hvernig nota ég Kveikuna?

Kveikjunni er, eins og nafnið gefur til kynna, ætlað að tendra hugmyndir fólks um frjóa og skapandi kennslu í sjónlistum. Í þessari fyrstu atrennu tengjast verkefnin byggingarlist.

Kveikjan er þannig upp byggð að á forsíðu eru 6 gluggar sem leiða inn í 6 meginflokka: tvívídd – þrívídd – efni – hugtök – samhengi – öll verkefni. Þegar gluggi hefur verið valinn birtist listi yfir undirflokka. Þegar einn þessara undirflokka er valinn kemur upp listi yfir verkefni.

Hér er valið verkefni og þá opnast verkefnið sjálft. Þar er að finna markmið, lýsingu, stikkorð, ítarefni (bækur, heimasíður og listamenn sem tengjast verkefninu), myndir og keðju.

Keðjan tengir saman verkefni. Smærri verkefni eru oft hluti af stærri verkefnum eða ferli. Ef þau hafa verið kennd í Myndlistaskólanum í ákveðnum listbúðum eða í samhengi við önnur verkefni kemur það fram hér. Þessar keðjur er hægt að smella á og skoða.

Myndir. Við val á myndum er horft til þess að þær lýsi sem best ferlinu og hugsuninni í verkefninu. Hægt er að smella á myndirnar og þá birtast þær stærri.